Jólajazz í Gömlu kartöflugeymslunni

Sunday 14. December at 20:00 - 21:30

Húsið opnar 19:30

Gamla kartöflugeymslan, Búðarstíg 19, Eyrarbakka, Eyrarbakki

Jólajazz, jólajazz, jólajazz!!

Öll hjartanlega velkomin á hlýlega jólatónleika í Gömlu kartöflugeymslunni við Búðarstíg á Eyrarbakka þann 14.desember kl. 20:00.

Jazzkettlingarnir Marína Ósk, Tómas Jónsson og Leifur Gunnarsson mæta í hús og bjóða upp á efnisskrá með jözzuðum jólalögum af gamla skólanum - þessum gömlu góðu sem allir elska.

Gestir mega eiga von á huggulegheitum í miklu magni og góðum skammti af hjartahlýju. Hver veit nema jólaskapið geri vart við sig?

Miðaverð er 5000kr. Posi á staðnum en miðaframboð er afar takmarkað og því líklegast skynsamlegt að tryggja sér miða hið snarasta.

Húsið opnar 19:30.

Fram koma:
Marína Ósk - söngur
Tómas Jónsson - píanó/hljómborð
Leifur Gunnarsson - kontrabassi

Gamla kartöflugeymslan, Búðarstíg 19, Eyrarbakka • Búðarstígur 19, 820 Eyrarbakki, Iceland

Google Map of Búðarstígur 19, 820 Eyrarbakki, Iceland

Marína Ósk Þórólfsdóttir

marinaosk@marinaoskmusic.com