Jazz í Djúpinu // Una Stef

Thursday 3. July at 20:30 - 21:30

Djúpið, Reykjavík

ÍSLENSKA

Una Stef flytur ljúfa djass- og sálartóna í Djúpinu þann 3. júlí nk. Efnisskráin verður samblanda af eigin efni og lögum úr heimi rytmískrar tónlistar. Ásamt henni spila Ingi Bjarni Skúlason á píanó og Bassaleikari Kynntur Síðar á kontrabassa.

Söngkonan og tónskáldið Una Stef hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi frá árinu 2014 þegar hún gaf út sína fyrstu sólóplötu. Hún hefur síðan komið víða fram með eigin tónlist ásamt hljómsveit, sálar/fönk og djass-skotin popptónlist, sem hefur verið tíður gestur á vinsældalistum ljósvakans. Fyrir þá tónlist hefur hún fengið tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna t.d. fyrir lög og söng ársins í flokki popptónlistar.

Þá hefur Una einnig verið virk í íslensku djass senunni og komið fram með mörgu af helstu djasstónlistarfólki landsins og gefið út efni t.d. með Stórsveit Reykjavíkur. Á síðasta ári gaf hún út djassplötuna “Hús númer eitt” sem inniheldur ný íslensk djasslög og texta eftir Stefán S. Stefánsson en hún var í kjölfarið tilnefnd sem djass söngkona ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Auk þess að starfa sem söngkona og lagasmiður starfar Una sem tónskáld og hefur til að mynda gert tónlist í kvikmyndir og fyrir kóra.

Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 sumarið 2025. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 3.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.

ENGLISH

Una Stef brings smooth jazz and soul to Djúpið on July 3. The setlist will be a blend of her own material and songs from the world of rhythmic music. Joining her are Ingi Bjarni Skúlason on piano and a yet-to-be-announced double bassist.

Singer and composer Una Stef has been a prominent figure in the Icelandic music scene since 2014, when she released her debut solo album. Since then, she has performed widely with her band, delivering soul/funk and jazz-influenced pop music that has frequently appeared on radio charts. Her work has earned her nominations at the Icelandic Music Awards, including for Song of the Year and Vocalist of the Year in the pop category.

Una has also been active in the Icelandic jazz scene, collaborating with many of the country’s leading jazz musicians and releasing material with ensembles such as the Reykjavík Big Band. Last year, she released the jazz album “Hús númer eitt” ("House Number One"), featuring new Icelandic jazz compositions with lyrics by Stefán S. Stefánsson. The album earned her a nomination for Jazz Vocalist of the Year at the Icelandic Music Awards. In addition to her work as a singer and songwriter, Una is also a composer, having written music for films and choirs.

The Jazz í Djúpinu concert series takes place on Thursday nights at 8:30 PM during the summer of 2025. Djúpið is the basement of the restaurant Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). The entrance to Djúpið is at the back, facing Bæjarins beztu. The entrance to the basement opens at 8:00 PM. Ticket price is 3.000 ISK, tickets are sold at the entrance and in advance. The concert series is organised by the Jazz Department of FÍH. Please note that there is no wheelchair access at the venue.

Djúpið • Hafnarstræti 15, 101, 101 Reykjavík, Reykjavíkurborg, Iceland

Google Map of Hafnarstræti 15, 101, 101 Reykjavík, Reykjavíkurborg, Iceland

Iceland Jazz

jazz@icelandjazz.is