ÍSLENSKA
STÍNA ÁGÚSTSDÓTTIR er ein fremsta jazz- og jazzpoppsöngkona landsins og hefur skapað sér nafn á senunni í Skandinavíu með sinni óviðjafnanlegu rödd. Stína er búsett í Stokkhólmi og starfar þar sem tónlistarkona en kemur reglulega heim og syngur eða semur tónlist. Hún hefur gefið út fimm sólóplötur og fengið fjölda tilnefninga til íslensku tónlistarverðlaunanna auk frábærra dóma á alheimsvísu.
Síðasta plata Stínu, Yours Unfaithfully (Prophone/Naxos), kom út í október s.l. en með henni mótar hún enn frekar nýjan og ferskan hljóðheim sem kjarnar sig í jazzinum en notar efni og innblástur úr öðrum stefnum eins og poppi, indie og jafnvel rokki.
Á þessum tónleikum mun Stína ásamt bandi sínu, Daníel Helgasyni gítarleikara, Birgi Steini Theodorsyni og Magnúsi Trygvasyni Elíassen, fara örlítið mýkra í nýju tónlistina og tvinna saman við tónlist síðustu platna auk nokkurra tökulaga.
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 sumarið 2025. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 3.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.
ENGLISH
STÍNA ÁGÚSTSDÓTTIR is one of Iceland’s leading jazz and jazz-pop singers and has made a name for herself on the Scandinavian scene with her unparalleled voice. Based in Stockholm, she works there as a musician but regularly returns to Iceland to perform or compose music. She has released five solo albums and has received numerous nominations for the Icelandic Music Awards, along with glowing international reviews.
Stína’s latest album, Yours Unfaithfully (Prophone/Naxos), was released this past October. With it, she continues to shape a fresh and distinctive sonic world rooted in jazz, yet drawing inspiration from genres like pop, indie, and even rock.
At this concert, Stína and her band — guitarist Daníel Helgason, Birgir Steinn Theodórsson, and Magnús Trygvason Elíassen — will take a slightly softer approach to the new material, blending it with music from her previous albums as well as select cover songs.
The Jazz í Djúpinu concert series takes place on Thursday nights at 8:30 PM during the summer of 2025. Djúpið is the basement of the restaurant Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). The entrance to Djúpið is at the back, facing Bæjarins beztu. The entrance to the basement opens at 8:00 PM. Ticket price is 3.000 ISK, tickets are sold at the entrance and in advance. The concert series is organised by the Jazz Department of FÍH. Please note that there is no wheelchair access at the venue.
Djúpið • Hafnarstræti 15, 101, 101 Reykjavík, Reykjavíkurborg, Iceland
