ÍSLENSKA
Tu Ha? Tu Bjö! fagnar sumrinu í Djúpinu eftir annasaman vetur af upptökum og tónleikahaldi í Mengi, Hannesarholti og Iðnó. Sveitin mætir með nýupptekna breiðskífu í farteskinu sem mun ekki líta dagsins ljós fyrr en í haust en í Djúpinu fá tónleikagestir forsmekk af plötunni í lifandi flutningi í bland við ýmsar óvæntar uppákomur. Hér er á ferðinni forvitnilegt tilraunastarf sem enginn menningarspekúlant ætti að láta fram hjá sér fara.
Tu Ha? Tu Bjö! er kvartett sem mætti skilgreina sem eins konar „tvöfalt dúó“ og hefur verið starfandi með hléum í nokkur ár. Hann leikur einungis frumsamin verk eftir meðlimi og kannar líkindi tveggja blásturshljóðfæra en varpar jafnframt ljósi á sérstöðu fjögurra flytjanda. Hið sameiginlega og hið ólíka verða tvær hliðar sama penings. Liðsmenn flétta tónsmíðar sínar saman við frjálsan spuna. Kosmós við kaós. Tu Ha? Tu Bjö!
Tumi Torfason : trompet
Hannes Arason : trompet
Tumi Árnason : saxófónn
Björgvin Ragnar Hjálmarsson : saxófónn
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 sumarið 2025. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 3.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.
ENGLISH
Tu Ha? Tu Bjö! celebrates summer at Djúpið. After a busy winter filled with recording sessions and performances at venues such as Mengi, Hannesarholt, and Iðnó, Tu Ha? Tu Bjö! welcomes the summer with a special concert at Djúpið. The band arrives with a freshly recorded album in tow — set for release this fall — but concertgoers will get a sneak preview of the new material in a live setting, mixed with unexpected surprises. This is an intriguing experimental project no culture enthusiast should miss.
Tu Ha? Tu Bjö! is a quartet that could be described as a kind of “double duo” and has been active, on and off, for several years. The group performs only original compositions by its members, exploring the interplay between two wind instruments while also highlighting the individual voices of its four performers. The shared and the distinct become two sides of the same coin. Their compositions weave together with free improvisation — cosmos meets chaos. Tu Ha? Tu Bjö!
Tumi Torfason – trumpet
Hannes Arason – trumpet
Tumi Árnason – saxophone
Björgvin Ragnar Hjálmarsson – saxophone
The Jazz í Djúpinu concert series takes place on Thursday nights at 8:30 PM during the summer of 2025. Djúpið is the basement of the restaurant Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). The entrance to Djúpið is at the back, facing Bæjarins beztu. The entrance to the basement opens at 8:00 PM. Ticket price is 3.000 ISK, tickets are sold at the entrance and in advance. The concert series is organised by the Jazz Department of FÍH. Please note that there is no wheelchair access at the venue.
Djúpið • Hafnarstræti 15, 101, 101 Reykjavík, Reykjavíkurborg, Iceland
