ÍSLENSKA
Bliss Quintet á tónleikaferð um Ísland
Bliss Quintet er ein af áhugaverðustu ungu hljómsveitunum í norsku jazzsenunni og hefur íslenska píanóleikarann Benjamín Gísla innanborðs. Í september heldur sveitin í tónleikaferð um Ísland og kemur fram víðs vegar um landið.
Bliss Quintet leggur áherslu á leikandi samskipti, villta orku og frjálsan spuna, í anda norrænna hljómsveita á borð við Atomic og Masqualero. Fyrr á árinu gaf sveitin út sína fjórðu plötu, In Motion, hjá Jazzland Recordings. Þar bætast nýir hljómar, meðal annars hljóðgervlar og flautur, við einkennandi, drífandi og hráan hljóm sveitarinnar. Jafnframt fær kyrrð, endurtekning og sameiginleg leit meira rými en áður.
– „Það leikur enginn vafi á því að Glasshouse býr yfir einstökum og eftirtektarverðum gæðum sem staðfesta stöðu Bliss Quintet í fremstu röð móderna jazzins í Evrópu.“
— Steven James, Jazz in Europe
Hlustaðu á nýjustu plötuna In Motion hér: https://orcd.co/rno4y1x
Meðlimir:
Oscar Andreas Haug – trompet
Zakarias Meyer Øverli – saxófónn
Benjamín Gísli Einarsson – píanó
Gard Kronborg – bassi
Rino Sivathas – trommur
Tónleikarnir eru styrktir af Music Norway og Norway Arts Council
- -
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 haustið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.
ENGLISH
With a playful interaction and energetic presence, Bliss Quintet has quickly established itself as a forward-thinking band within the Norwegian jazz scene
Dramatic energetic ballads, fanfare-like horn riffs, complex rhythms and open harmonic landscapes are central themes for Bliss Quintet. Still well-kept and maintained in the band’s sound, is the focus on playful interaction, wild energetic presence, and elements of free playing, following in the footsteps of renowned nordic bands such as Atomic and Masqualero.
- -
The Jazz í Djúpinu concert series takes place on Thursday nights at 8:30 PM during the fall of 2026. Djúpið is the basement of the restaurant Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). The entrance to Djúpið is at the back, facing Bæjarins beztu. The entrance to the basement opens at 8:00 PM. Ticket price is 4.000 ISK, tickets are sold at the entrance and in advance. The concert series is organised by the Jazz Department of FÍH. Please note that there is no wheelchair access at the venue.
Djúpið • Hafnarstræti 15, 101, 101 Reykjavík, Reykjavíkurborg, Iceland